15.03.2010 23:05
Úrslit í tölti í KB mótaröðinni er núna hægt að nálgast
hérna á síðunni. Eins er hægt að finna þau hér til hliðar undir "Fréttabréf og skjöl"
Skrifað af Kristján Gíslason
14.03.2010 22:51
Myndir frá verðlaunaveitingum í tölti KB-mótaraðar eru nú komnar inn á myndaalbúmið.Nú er bara að fara að taka frá pláss fyrir verðlaunagripina í gæðingakeppninni þann 27. mars.
Skrifað af Kristján Gíslason
13.03.2010 19:10
Nú er lokið glæsilegu töltmóti í Faxaborg. Sterkir knapar og hestar voru skráðir til leiks og var hart barist í hverjum einustu úrslitum. Í 2. flokki bar Grettir Börkur Guðmundsson sigur úr bítum og í 1. flokki var það Siguroddur Pétursson sem hampaði sigurlaunum eftir gríðarlega baráttu við Gunnar Halldórsson. Úrslit voru ekki ljós fyrr en að loknum bráðabana og dugði þó varla til. Gylfi Konráðsson sigraði barnaflokkinn og Sigrún Rós Helgadóttir sigraði unglingaflokkinn - heildarúrslit koma síðar hérna inn. Myndir frá Guðbjörgu Ásmundsdóttir verða einnig settar inn fljótlega en hún tók mikið af myndum fyrir okkur og kunnum við henni bestu þakkir fyrir.
Skrifað af Kristján Gíslason
13.03.2010 13:07
Nú er hafin fyrir forkeppni í tölti í Faxaborg. Fjöldi áhorfenda er mættur og létt yfir mannskapnum. Skráningar eru rúmlega 100 og augljóst að hart verður barist. Hérna birtast vonandi síðar í dag eða í kvöld myndir og fréttir af úrslitum. En þeir sem vilja fá úrslitin beint í æð ættu bara að mæta og horfa á.
Skrifað af Kristján Gíslason
11.03.2010 15:54
Ætlunin er að fara í skemmtiferð laugardaginn 3. apríl næstkomandi.
Lagt verður af stað með rútu frá félagsheimili Skugga og hrossaræktarbú skoðað á Suðurlandi. Því næst farið í Hestamiðstöðina á Hellu en þar verða sýndir fjölmargir stóðhestar á sýningu sem nú er í undirbúningi. Á heimleiðnni verður komið við á matsölustað og borðað.
Áætlað er að kostnaður við rútu og stóðhestasýningu verði um 5.000 kr pr. einstakling, en það fer að einhverju leyti eftir þátttökufjölda.
Pantanir hjá Sigga í síma 897-2171, fyrir 19. mars næstkomandi.
Skemmtinefnd
Skrifað af Kristján Gíslason
10.03.2010 23:40
Yfirlit yfir alla þá sem kjörnir voru til trúnaðarstarfa fyrir Skugga á aðalfundi þann 9.mars er hægt að nálgast
hérna og einnig er það að finna undir "Stjórn og nefndir" hérna til hliðar.
Skrifað af Kristján Gíslason
09.03.2010 22:56
Þá er lokið aðalfundi Skugga fyrir árið 2009. Mæting félagsmanna var mjög góð eða 53 og langt síðan svo margir hafa sótt aðalfund. Er þetta til marks um öflugt starf í félaginu. Á milli aðalfunda hefur félagsmönnum fjölgað um 38 sem er mjög gott. Má örugglega rekja hluta fjölgunar til stofnunar kvennadeildar, Skuggadísa í haust.Fjárhagur er traustur og góður rekstrarafgangur. Nefndir hafa margar starfað af þrótti á síðasta ári og mikið verið afrekað.Tillaga um sameiningarviðræður var samþykkt samhljóða og fara stjórnir Faxa og Skugga því væntanlega að ræða saman um kosti og galla sameiningar. Nokkrar símamyndir frá fundinum eru í myndasafni.
Skrifað af Kristján Gíslason
09.03.2010 12:33
Skrifað af Kristján Gíslason
08.03.2010 21:50
Komnar eru myndir frá vígslu Faxaborgar inn á myndasíðuna. Steinunn og Björgvin í Kvistási eiga myndir í einu albúminu - eru þeim færðar bestu þakkir fyrir að deila þeim með okkur. Ef einhverjir eiga myndir sem þeir geta hugsað sér að birtist hér þá endilega senda þær á umsjónarmann.
Skrifað af Kristján Gíslason
08.03.2010 16:25
Minnt er á aðalfund félagsins sem haldinn verður annaðkvöld, þriðjudagskvöldið 9. mars og hefst hann kl. 20 í félagsheimilinu. Dagskráin er hérna aðeins fyrir neðan.
Skrifað af Kristján Gíslason
07.03.2010 19:01
Þá er lokið frábærri hátíð í reiðhöllinni en í dag var hún vígð formlega og hlaut hún nafnið Faxaborg. Mikið var um dýrðir - talað orð og stórgóðar sýningar. Gestir voru fjölmargir og er ætlað að vel á fjórða hundrað manns hafi komið í húsið. Ingi Tryggvason setti hátíðina og stjórnaði henni. Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason blessaði húsið og Kristján Gíslason fór yfir byggingarsöguna. Góðir gestir ávörpuðu samkomuna og fluttu okkur góðar óskir. Þeir sem tóku til máls voru Páll Brynjarsson sveitarstjóri, Haraldur Þórarinsson. form. LH, Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra og Guðni Ágústsson f.v. landbúnaðarráðherra. Hestamannafélagið Snæfellingur gaf peningaupphæð til tækjakaupa. Í hléi gæddu gestir sér á frábærri kjötsúpu sem var í boði Gæðakokka.Börn og unglingar úr Faxa og Skugga sýndu færni sína á hestum og síðan var töltsýning fjögurra knapa úr Skugga og að endingu komu fram tveir stóðhestar, þeir Sólon frá Skáney og Glymur frá Innri Skeljabrekku. Allar þessar sýningar tókust vel og glöddu viðstadda.

Skrifað af Kristján Gíslason
06.03.2010 12:22
Í næstu viku verða haldnir eftirtaldir fundir um málefni hrossaræktarinnar. Fundirnir hefjast kl. 20:30. Mánudaginn 8. mars. Félagsheimili Fáks, Reykajvík. Þriðjudaginn 9. mars. Hvanneyri, Borgarfirði.
Miðvikudaginn 10. mars. Félagsheimili Sleipnis, Selfossi.
Frummælendur verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, Sigrún Ólafsdóttir formaður Félags tamningamanna og fulltrúi í fagráði í hrossarækt og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.
Skrifað af Kristján Gíslason
05.03.2010 12:07
Dagskrá **:
1. Setning kl. 15:00
Ingi Tryggvason
2. Húsblessun
Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur
3. Byggingarsaga hússins rakin
Kristján Gíslason
4. Faxabörn og - unglingar.
5. Ávörp gesta.
6. Barnasýning.
Birna Tryggvadóttir Thorlacius
7. Veitingar
Í boði Gæðakokka ehf í Borgarnesi
8. Töltsýning
Benedikt G. Líndal
9. Stóðhestasýning
Hrossaræktarsamband Vesturlands
**Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar
Skrifað af Kristján Gíslason
05.03.2010 12:05
Á
fræðslukvöldinu verður farið yfir helstu hrossaliti og erfðum þeirra lýst.
Myndir verða mikið notaðar og raunveruleg dæmi tekin til útskýringar. Markmiðið
er að þátttakendur öðlist skilning á helstu atriðum litaerfðanna.
Kennari: Guðni Þorvaldsson
frá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Stund og staður: Mán. 8.
mars Kl. 19:30-22:00 í matsal, Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Verð: 1500 kr. Mikilvægt
er að skrá sig á endurmenntun@lbhi.is
eða í síma 433 500 og greiða fyrirfram á
(óafturkræft) á reikninginn
0354-26-4237, kt. 411204-3590. Munið að senda kvittun með skýringu á endurmenntun@lbhi.is.
Mikilvægt er að
ganga frá skráningu og millifærslu þátttökugjalds fyrir mánudaginn!
Skrifað af Kristján Gíslason
02.03.2010 16:39
Félag tamningamanna, í samstarfi við Félag hrossabænda, stendur fyrir fræðslukvöldi í félagsheimili Skugga í Borgarnesi nk. föstudagskvöld, 5. mars kl. 19. Þar mun hinn heimsþekkti knapi og þjálfari Rúna Einarsdóttir - Zingsheim, sem búsett er í Þýskalandi, flytja fyrirlestur um þjálfun hrossa, m.a. með tilliti til mismunandi áherslna á milli Íslands og meginlands Evrópu, auk þess sem hún mun svara fyrirspurnum gesta um hvaðeina er reiðmennsku og þjálfun varðar.
Rúna er gríðarlega reynslumikil og hefur náð frábærum árangri í hestaíþróttum og sýningum í gegnum tíðina.
Allir eru velkomnir, kaffiveitingar á staðnum. Aðgangseyrir er kr. 1.000, frítt fyrir skuldlausa FT félaga og frítt fyrir 12 ára og yngri.
*Þess má geta að Rúna verður einnig þátttakandi í kennslusýningunni "Hestanálgun" í Rangárhöllinni á Hellu sunnud. 7. mars nk. kl. 13.
(tekið af vef LH.)
Skrifað af Kristján Gíslason