Færslur: 2010 Janúar

21.01.2010 08:32

Æskulýðsmál - dagskrá

Æskulýðsnefnd Skugga hefur sett upp áætlun um viðburði í vetur - verða þeir kynntir betur er nær þeim dregur.

20.janúar: Verklegur þáttur Knapamerkis 1 hefst.

28.janúar: Bingó og pizzakvöld fyrir börn, unglinga og ungmenni í Félagsheimilinu kl. 19:00.
 
1.febrúar: Námskeið fyrir 11 ára og yngri hefjast í Reiðhöllinni. Kennari er Birna Tryggvadóttir.
27.febrúar: Útreiðartúr fyrir unglinga og ungmenni kl. 14:00.
 
18.mars: Fræðslukvöld. Auglýst nánar þegar nær dregur.
21.mars: Fjölskyldureiðtúr kl. 14:00.
 
5.apríl (annar í páskum): Páskaratleikur fyrir börn, unglinga og ungmenni.
24.apríl: Fyrirhuguð æskulýðssýning í samvinnu með Faxa.
 
Maí: Fjölskyldureiðtúr. Nánar auglýstur síðar.
Maí: Óvissuferð og/eða sameiginlegur reiðtúr með Faxakrökkum. Nánar auglýst síðar.

20.01.2010 21:46

Knapamerkjanámskeið

Fyrstu tímarnir í verklega knapamerkjanáminu voru í dag, er nemendum kennt í tveimur hópum og eru þeir afar áhugasamir. Birna Tryggvadóttir reiðkennari er hér að kenna leyndardóma réttrar ásetu. 


20.01.2010 16:34

Unglingalandsmót 2010

(Af mbl.is)
"13. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi í sumar en stjórn Ungmennafélags Íslands komst að þessari niðurstöðu á fundi sínum í dag. Unglingalandsmót hefur aldrei áður verið haldið í Borgarnesi en landsmót var haldið þar 1997".

Hérna er komið skemmtilegt verkefni fyrir hestamannafélögin innan UMSB að vinna að um verslunarmannahelgina - Keppt er í hestaíþróttum á unglingalandsmótum og við höfum alla aðstöðu til þess að geta staðið vel að þeirri keppni. 

20.01.2010 13:35

Reglur í reiðhöll

Stjórn Seláss ehf hefur búið til reglur sem gilda í reiðhöllinni. Eru félagsmenn og aðrir notendur beðnir um að kynna sér þær og fara síðan eftir þeim. Það er afar mikilvægt að við öll sammælumst um það að ganga vel um og sýna hvert öðru tillitssemi. Reglurnar er að finna á undirsíðunni "Reiðhöllin" en einnig er þær að finna hérna undir.

19.01.2010 21:07

Reiðhöllin - molar

Nú þegar eru áformuð nokkur mót og aðrir viðburðir í reiðhöllinni. Áður hefur verið getið um vetrarleika Faxa og Skugga en þeir fyrstu verða 13. febrúar. Félag tamningamanna áætlar að vera með kennslusýningu þann 9. febrúar. Eins ætlar Hrossaræktarsamband Vesturland  að halda kynbótasýningu 25. apríl n.k.Sem sagt margt framundan og eins gott að merkja við á dagatalinu. Ekki má svo gleyma vígsluhátíðinni þann 7. mars. 
Reiðhöllin er opin fyrir korthafa á þeim tímum sem hún er ekki leigð út til annarra viðburða. Eru félagar og aðrir hvattir til að kaupa sér aðgang - upplýsingar á heimsíðu reiðhallar - sjá tengla. Senn koma upp umgengnisreglur í húsinu en aðalmálið auðvitað að ganga vel um og fara eftir þeim reglum sem settar verða. Birtast þær hérna um leið og þær verða tilbúnar.

18.01.2010 21:54

Ávarp formanns

Stjórn Hestamannafélagsins Skugga hefur ákveðið að setja á fót nýja heimasíðu, þar sem gamla heimasíðan okkar hefur verið til hálfgerðra  vandræða hvað varðar uppfærslur og umgengni.  Kerfið sem við höfðum valið var orðið úrelt og erfitt að eiga við fyrir leikmenn, sem ekki hafa sérþekkingu á flóknu forritunarumhverfi.  Gömlu heimasíðunni hefur því verið lokað og ný heimasíða tekur til starfa; www.hmfskuggi.is

Félagi okkar, Kristján Gíslason, hefur tekið að sér uppsetningu á nýrri heimasíðu og umsjón með henni næstu misserin.  Hefur Kristján unnið að þessu frá áramótum og blasir við okkur hér glæsilegur árangur, með fréttum og fróðleik um starfið hjá okkur í Skugga.  Stjórn Skugga er þakklát Kristjáni fyrir framtak hans og vilja til að sinna þessu starfi fyrir okkur og vonumst við í stjórn til að þessi miðill verði vel nýttur af félögum okkar, sem og öðrum þeim sem áhuga hafa á starfsemi okkar félags.  Ætlun Krisjáns er að uppfæra síðuna reglulega með fréttum af starfinu, fróðleik um félagið, myndum af félagsmönnum og starfsemi, gömlum og nýjum.  Við í stjórn Skugga þurfum því að vera dugleg að senda honum fréttir og eins er með nefndir félagsins, sem hafa hérna vettvang til að koma á framfæri auglýsingum um viðburði og uppákomur sem tengjast málefnum hestamanna og félagsstarfi okkar í Skugga.  Félagsmenn geta einnig sent póst á Kristján ef þeir vilja koma einhverju á framfæri, sem varðar starfsemina.

Félagsmenn eru hvattir til að fylgjast vel með framvindu mála og kíkja daglega inná heimasíðuna, til fróðleiks um hvað er í gangi hjá félaginu og hvaða viðburðir eru framundan.

Með kveðju,

Stefán Logi Haraldsson, formaður Hmf. Skugga

18.01.2010 21:24

Skuggadísir

Stelpurnar í Skugga tóku sig til í vor og stofnuðu kvennadeild. Heitir félagsskapurinn Skuggadísir. Tilgangurinn er að efla félagsstarfið, gera eitthvað skemmtilegt saman og auka þannig samstöðuna. Nú hefur dagskrá vetrarins verið kynnt og er hana að finna hérna undir. Af dagskránni má ráða að heilmikið verður um að vera í vetur. Verða viðburðir kynntir hérna á þessum vettvangi er nær þeim dregur.

17.01.2010 02:04

Nýtt lén

Hestamannafélagið hefur tryggt sér lénið hmfskuggi.is og verður heimasíðan því undir því nafni héðan í frá. Gamla heimasíðan, skuggi.info, mun því detta út enda hefur hún ekki verið virk í marga mánuði. Verður unnið að því að kynna síðuna sem víðast enda ætlum við að halda hérna úti lifandi síðu um félagsstarfið og hestamennskuna hérna.   

16.01.2010 00:16

Knapamerki 1

Hestamannafélagið Skuggi og Grunnskólinn í Borgarnesi eru í samstarfi um kennslu til prófs í Knapamerki 1. Grunnskólinn býður upp á bóklega þáttinn sem hluta af vali í 7.-10. bekk og síðan fá þeir nemendur sem taka verklega hlutann hann metinn sem valgrein á vorönn. Kennari er Birna Tryggvadóttir reiðkennari og hefst verklegi hlutinn í reiðhöllinni miðvikudaginn í næstu viku, þann 20. janúar. Eru nemendur afar áhugasamir um námið enda eru þeir að læra um sérstakt áhugamál sitt. Þeir sem vilja kynna sér út á hvað þetta nám gengur fá allar upplýsingar á heimasíðu verkefnisins hjá Hólaskóla. 

14.01.2010 10:06

Kynningarfundur

Stjórn Seláss ehf. ætlar að halda kynningarfund um höllina þriðjudaginn 26. janúar nk. í reiðhöllinni kl. 20:00.  Fundurinn er ætlaður félagsmönnum Faxa og Skugga.  Þar ætlar stjórnin aðeins að kynna þá möguleika sem höllin býður upp á og fá fram sjónarmið fólks um notkun hússins og annað í sambandi við það.  

12.01.2010 23:11

Vetrarleikar

Mótanefndir félaganna Skugga og Faxa áforma að halda saman fjóra vetrarleika í reiðhöllinni í Borgarnesi. Þeir fyrstu eru fyrirhugaðir 13. febrúar og síðan eru leikar 13 mars, 27. mars og 10. apríl. Nánari upplýsingar, bæði um keppnisgreinar og annað er viðkemur mótunum verður kynnt fljótlega. Nú er bara að fara að þjálfa. 

12.01.2010 22:37

Stjórnarfundur

Stjórn Skugga hélt stjórnarfund í kvöld. Margt var á dagskrá, má þar nefna heimasíðu, málefni reiðhallar - uppbygging og rekstur, mótahald, umgengnisreglur í hesthúsahverfi og margt fleira. Er frétta frá fundinum að vænta á næstunni.  

11.01.2010 08:11

Vígsla reiðhallar

Eftirfarandi frétt er tekin af vef Skessuhorns (breytt dagsetning 12.1.10)

Á stjórnarfundi í Vindási, eigendafélagi Reiðhallarinnar í Borgarnesi í síðustu viku, var rætt um fyrirhugaða vígslu á höllinni. Ákveðið var að sunnudagurinn 7. mars næstkomandi verði formlegur vígsludagur hússins. Einnig var rætt um nafn á reiðhöllinni og samþykkt tillaga þess efnis að láta fara fram nafnasamkeppni. Fá lesendur Skessuhorns að koma með tillögur um nöfn og verður það kynnt síðar, en jafnframt ákveðið að skipa þriggja manna undirbúningsnefnd sem kynna mun samkeppnina. Þangað til geta lesendur byrjað að hugsa um vænlega nafngift á hið nýja mannvirki í Borgarnesi.  

08.01.2010 23:18

Kynbótasýningar 2010

Fagráð í hrossarækt hefur ákveðið tímasetningar kynbótasýninga árið 2010. Alls verða sýningarnar 19 talsins og verður sú fyrsta á Sauðárkróki dagana 22. og 23.apríl og síðasta sýningin verður svo dagana 18. - 20. ágúst í Skagafirði/Eyjafirði.

Tími    Staður    Sími
22.4 - 23.4    Sauðárkrókur    455-7100
10.5 - 14.5    Reykjavík    480-1800
12.5 - 14.5    Eyjafjörður    460-4477
17.5 - 21.5    Hafnarfjörður    480-1800
24.5 - 28.5    Hafnarfjörður    480-1800
24.5 - 28.5    Sauðárkrókur    455-7100
31.5 - 4.6    Hella    480-1800
7.6 - 11.6    Hella    480-1800
31.5 - 4.6    Blönduós    451-2601
1.6 - 2.6    Hornafjörður    480-1800
3.6 - 4.6    Hérað    471-1161
7.6 - 11.6    Eyjafjörður    460-4477
7.6 - 11.6    Borgarfjörður    437-1215
27.6 - 4.7    Landsmót    
3.8 - 6.8    Borgarfjörður    437-1215
11.8 - 13.8    Blönduós    451-2601
9.8 - 13.8    Hella    480-1800
16.8 - 20.8    Hella    480-1800
18.8 - 20.8    Skagafjörður/Eyjafjörður    460-4477

(tekið af vef Hestafrétta). 

08.01.2010 22:41

Landsmót 2010

Hestamenn fjölmenna á landsmót í Skagafjörðinn í lok júní í sumar. Það byrjar sunnudaginn 28. júní og því lýkur sunnudaginn 4. júlí. Sem sagt lengsta landsmótið frá upphafi. Búið er að setja upp dagskrá og er hana að finna á heimasíðu mótsins . Reikna má með því að borgfirskir knapar og hestar láti að sér kveða þar. Því er ekki seinna vænna en fara að huga að undirbúningi. 
Flettingar í dag: 125
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 346
Gestir í gær: 98
Samtals flettingar: 252834
Samtals gestir: 55476
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 16:00:12