12.08.2010 20:51
Skráning á Íslandsmót
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. Hér birtast nokkrir punktar um framkvæmd mótsins.
Skráning fer fram hjá aðildarfélögum LH sem auglýsa skráningu hjá sér.
Síðasti skráningardagur er 16. ágúst (félög skrá í sportfeng, mótsnúmer er IS2010SOR054).
Aðildarfélögin sjá svo um að leggja á inn á reikning 0135-26-002870, kt. 640269-6509 og senda staðfestingu á brs2@hi.is auk þess sem þau senda upplýsingar um hvern og einn keppanda á sama póstfang.
Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.
Skráningargjald er 4.000 krónur
Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma 698-3168 fyrir 20. ágúst.
Engin einkunnalágmörk eru á mótið.
Framkvæmdanefnd ÍM
Skrifað af Kristján Gíslason
Flettingar í dag: 394
Gestir í dag: 130
Flettingar í gær: 522
Gestir í gær: 161
Samtals flettingar: 207765
Samtals gestir: 46652
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:10:50
