03.08.2010 18:54
Faxagleði
Faxagleði og Gæðingakeppni (með sérstakri forkeppni þar sem tveir til þrír verða inná vellinum í einu) verður haldin á Mið-Fossum í Andakíl laugardaginn 7.ágúst.Ef þátttaka verður mikil er hugsanlegt að mótið verði sett á tvo daga.
Eftirtaldar greinar eru á dagskrá: A-flokkur, B-flokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur og barnaflokkur. Skráning í gæðingakeppnina á netfangið bjorgm@vesturland.is og í síma 856-2734 Þórdís. Skráningargjöld eru 2500 kr í A-flokk, B-flokk og ungmennaflokk en 1500 kr í unglingaflokk og barnaflokk og skulu þau greidd inná reikn. 0326-26-5300 kt.530169-0659 . Senda kvittun fyrir greiðslu á bjorgm@vesturland.is. Skráningu lýkur miðvikudaginn 4.ágúst kl.19:00. Firmakeppni Faxa, keppt er í eftirtöldum flokkum: Pollaflokki Barnaflokki Unglingaflokki Kvennaflokki Karlaflokki Kappreiðar: 150 m skeið 250 m skeið 300 m brokk 300 m stökk. Eftir kappreiðar verða leikir og grill við reiðhöll.
