03.07.2010 00:52

Síðsumarsferð Skugga

Nú líður senn að því að hestamenn söðli hesta sína (þá sem heilbrigðir eru) og skelli sér í hina árlegu síðsumarsferð Skugga. Ferðanefnd hefur útfært nánar áætlunina sem kynnt var á heimasíðunni fyrir nokkru. Ferðahelgin er semsagt 13. - 15. ágúst og er áætlunin sem hér segir:

Föstudagur 13. ágúst. Lagt af stað frá hesthúsahverfi Skugga kl. 10 árdegis og haldið sem leið liggur að Haukatungu þar sem hestar verða í girðingu. Gisting er í Lindartungu. Þetta er 6 - 8 tíma ferð.

Laugardagur 14. ágúst. Lagt af stað frá Haukatungu kl. 11. Riðið út að Haffjarðará og upp með henni eftir veiðivegi að Höfða. Þaðan er riðið niður hjá Rauðamel og til baka að Haukatungu. Þetta er létt leið og ekki löng, 23 - 25 km. Þennan dag verður ekki rekið.

Sunnudagur 15. ágúst. Haukatunga - Borgarnes, brottför ekki seinna en um hádegi.

Við það er miðað að hægt sé að koma inn í ferðina á hvaða stigum sem er. T.d. koma á föstudagskvöld með hrossin í kerru og gista með glöðum hópi í Lindartungu aðfararnótt laugardags, nú eða koma að morgni laugardags og taka þátt úr því.

Kostnaði verður  stillt í hóf eins og hægt er. Gisting er kr. 2.000.- pr. nótt og gjald fyrir hest er kr. 250 pr. sólarhring. Ferðanefnd mun bjóða upp á matarmikla súpu á föstudagskvöld og síðan hafragraut og brauð á morgnana. Að öðru leyti þurfa þátttakendur að nesta sig sjálfir. Reikna má með 1.000 - 1.500 kr. kostnaði vegna þessa. Kveikt verður upp í grilli á laugardagskvöld svo upplagt er að hafa  eitthvað til að skella á það. Eins þarf að hafa eitthvað til að sofa við en dýnur eru á staðnum. 

Tilkynna þarf þátttöku ekki síðar en 10. ágúst til Maríu í s: 698-4338, marey@simnet.is eða til Kristjáns í s: 898-4569, kristgis@simnet.is .

Nú er bara að vona að hrossin verði heilbrigð svo komast megi í ferðina og ekkert að því að bjóða með sér gestum.

Ferðanefnd Skugga

Flettingar í dag: 394
Gestir í dag: 130
Flettingar í gær: 522
Gestir í gær: 161
Samtals flettingar: 207765
Samtals gestir: 46652
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:10:50