25.03.2012 22:30
Vesturlandssýningin
Þá er lokið stórgóðri sýningu vestlendskra hestamanna sem haldin var í Faxaborg í gær. Troðfullt var á pöllum og urðu einhverjir því miður frá að hverfa. Fjölmörg atriði voru á sýningunni en framkvæmd hennar gekk vel, engar tafir utan smávegis í kjölfar óhapps sem átti sér stað í dekkjarallýinu en einn knapinn fótbrotnaði því miður. Þétt og góð dagskrá. Eiga forsvarsmenn sýningarinnar mikið hrós skilið. Fram kom á sýningunni að Magnús gæðakokkur hefði gefið Faxaborg hljóðkerfi sem þarna var tekið í notkun og var mikill munur á hljóðgæðum frá því sem verið hefur. Flott framtak hjá Magnúsi. Myndin sem fylgir hér er tekin af barnahópnum frá Skugga en hann var með góða sýningu.

Verðlaun voru einnig veitt á sýningunni fyrir stigahæstu knapa og lið í KB mótaröðinni. Er hér mynd af verðlaunahöfum.
Skrifað af Kristján Gíslason
22.03.2012 14:45
Vesturlandssýning - sýningarskrá
Nú hafa stjórn Vesturlandssýningar í Faxaborg n.k. laugardagskvöld birt sýningarskrána. Eru fjölda mörg atriði á dagskrá, hvert öðru forvitnilegra en sjón er sögu ríkari - munið forsöluna.
Skrifað af Kristján Gíslason
Flettingar í dag: 125
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 346
Gestir í gær: 98
Samtals flettingar: 252834
Samtals gestir: 55476
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 15:38:50
