Færslur: 2010 Júní
30.06.2010 22:27
Hestamannamót Storms
Hestamannamót Storms fer fram á Söndum í Dýrafirði 16. og 17. júlí n.k. Rétt til þátttöku hafa allir knapar sem skráðir eru í félög innan LH. Föstudaginn 16. júlí kl. 15:00 hefst forkeppni í A og B flokkum gæðinga, barna, unglinga, ungmennaflokkum og gæðingatölti. Kl. 20:00 hefst kvöldvaka í Reiðhöllinni. Setning Hestamannamóts Storms 2010, keppni í fljúgandi skeiði, liðakeppnin ,,Sandariddararnir 2010" o. fl. Grín og glens fyrir alla fjölskylduna. Laugardaginn 17. júlí kl. 12:00 hefst dagskráin á hópreið hestamanna og að henni lokinni verður keppt til úrslita í öllum flokkum. Einnig verður keppt í 300m brokki, 300m stökki og 250m skeiði. Þegar úrslit liggja fyrir verður farið í útreiðartúrinn góða. Allir hestfærir velkomnir með. Um kl. 20:00 verður slegið upp grillpartý í Reiðhöllinni. Heitt grill á staðnum. Tekið verður við skráningu keppnishrossa til kl. 21:00 að staðartíma þann 13. júlí á netfangið valdie@snerpa.is eða í síma 864-7676, Sonja. Gefa þarf upp kennitölu knapa og IS númer keppnishrossa. Skráningar gjald er kr. 1.000,-- pr. hross og greiðist inn á 1128-05-1908, kt. 600783-0259. Skráningar í fljúgandi skeið og í ,,Sandariddararnir 2010´´, skal skila á netfangið nannabjork@simnet.is eða í síma 895-0711, Nanna. Engin skráningargjöld! Liðstjórar ,,Sandariddara´´ eru beðnir um að hóa saman liðum sínum og gera sig klára fyrir kvöldvökuna. Gott tjaldsvæði er á Söndum og góð aðstaða fyrir aðkomu hross. Einn aðgöngumiði sem gildir á allt! Fullorðnir kr. 1.000,-- Börn á grunnskólaaldri kr. 500,-- Börn á leikskólaaldri, ókeypis aðgangur. Nánari uppýsingar um dagskrá hestamannamóts Storms munu birtast á http://stormur.123.is/
22.06.2010 12:50
Enn um veikina
1. Hvernig er hægt að sjá hvort hross séu en veik eða ekki alveg komin í lag?
" Hreyfa þau varlega í byrjun en auka svo við þjálfunina smátt og smátt."
2. Hvað skal gera við hross með einkenni, setja þau út eða taka þau inn?
"Alla jafna líður hrossunum betur úti en þau mega líka vera inni ef umhirða er góð."
3. Virkar Pensilín á veikina?
"Já, Pensilín meðhöndlun virkar í mörgum tilfellum vel. Þó er nauðsynlegt að meðhöndla í allt að 10 daga."
4. Hvað verður þetta lengi að fara úr þeim eða verður þetta krónískt?
"Flestir hestar eru 3-6 vikur með hósta og/eða hor en 8 vikur er ekki óalgengur tími, fáir lengur. Ekki mikil hætta á að veikin verði krónísk.
5. Má þjálfa hross þó það leki aðeins úr nösum eða hósta bara smá?
"Það er óhætt að þjálfa hesta þó leki úr nösum glært hor og jafnvel aðeins hvítt ef þeir eru ekki slappir. Hestar sem hósta eitthvað að ráði ættu að vera í hvíld en það má þjálfa hesta þó þau hósti einstaka sinnum til hreinsunar.
15.06.2010 22:41
Tilkynning frá beitarnefnd
Beitarnefnd
mun standa fyrir smölun á Borgargirðingunni n.k. laugardag, 19. júní, kl. 10:00
og eru félagsmenn sem eiga hross í girðingunni vinsamlegast beðnir að mæta við
hlið Borgargirðingarinnar á þeim tíma. Fyrirhugað er að smala hópnum uppí
hesthúsahverfi.
Beitarnefnd
Skugga.
14.06.2010 20:24
Unglingalandsmót í Borgarnesi
13.06.2010 12:39
Frá vefstjóra
05.06.2010 22:16
Beitarhólf
Beitarnefnd hefur ákveðið, með hliðsjón af góðu tíðarfari, að félagsmenn sem fengið hafa úthlutað beitarhólfum megi byrja að sleppa í sín beitarhólf frá og með morgundeginum (laugardag 05. júní 2010). Brýnt er fyrir hesteigendum að ganga þó vel úr skugga um að beit í þeirra hólfum sé orðin fullnægjandi fyrir þann fjölda sem þangað er sleppt og tryggja með heygjöf ef einhver vafi leikur þar á. Ítrekað er að hesteigendur eiga að vera búnir að klippa númer sitt í síður hrossanna, áður en sleppt er í beitarhólfin.
kv.
F.h. Beitarnefndar og stjórnar Skugga
Stefán Logi Haraldsson
05.06.2010 22:15
Mótahald
Mótanefnd Skugga vill koma því á framfæri við félagsmenn að vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa með "hesta-kvefpestinni" er öllum fyrirhuguðum mótum á vegum félagsins hér með aflýst. Ekki eru því fyrirhuguð nein mót á vegum félagsins fyrr en í byrjun næsta árs.
kv.
F.h. Mótanefndar Skugga
Stefán Logi Haraldsson
04.06.2010 13:10
Girðingarvinna
Ágætu Skuggafélagar
Beitarnefnd og reiðveganefnd félagsins blása til átaks í girðingavinnu. Annarsvegar þarf að endurnýja og/eða setja upp nýjar beitarhólfsgirðingar og hins vegar að girða af nýjan reiðveg ofan Bjarnhóla. Óskað er eftir sjálfboðaliðum til þessa verks næsta mánudag, hinn 7. júní. Mæting er áætluð kl. 19:00 við Bjarnhóla. Hafið með ykkur verkfæri eins og hamar, töng, járnkarl, sleggju/staurahnall, skóflu og strekkjara eftir því sem því hafið yfir að ráða.
Beitarnefnd Skugga
Reiðveganefnd Skugga
