Færslur: 2010 Maí
31.05.2010 16:13
Landsmóti frestað
Þetta var niðurstaða fundar hagsmunaaðila í hrossarækt sem haldinn var í dag. Haraldur Þórarinsson, formaður stjórnar landsmótsins, segir þetta hafa verið erfiða en nauðsynlega ákvörðun. Ekki hafi verið forsvaranlegt að stefna saman hestum af öllu landinu vegna þeirrar stöðu sem upp hafi komið vegna veikinnar. Ljóst er að miklar tekjur munu tapast vegna þessarar ákvörðunar.
frettir@ruv.is
30.05.2010 13:22
Úrtaka og gæðingamót
Mótanefnd
Skugga hefur ákveðið að úrtaka og gæðingarmót, sem áformað hafði verið að halda
n.k. laugardag 05. júní, verði frestað um óákveðinn tíma.
Þar sem
hóstapestin í hrossunum er ekki gengin yfir og auk þess mikil óvissa um
Landsmót hestamanna, þar af leiðandi, þá er alveg ljóst að útilokað er að
tímasetja úrtöku okkar, en nánar verður auglýst um hana þegar málin skýrast.
Með bestu
kveðju,
F.h.
Mótanefndar og stjórnar Skugga
Stefán Logi
Haraldsson
29.05.2010 00:04
Frá stjórn Skugga
Stjórn og
Beitarnefnd Skugga sendi í lok síðustu viku erindi til Borgarbyggðar, þar sem
óskað var heimildar til að sleppa hrossum í beitarhólf fyrr en samningur
gerir ráð fyrir, vegna hrossapestarinnar sem nú herjar á hestana okkar.
Byggðaráð samþykkti nú í vikunni að verða við erindinu enda verði fóðrun
hrossa tryggð þar sem beit er ónóg, eins og segir í bókun byggðaráðs.
Beitarnefnd Skugga hefur því
ákveðið að frá og með morgundeginum (laugardag 29. maí 2010) megi félagar í
Skugga sleppa hrossum sínum í Borgargirðinguna, en Beitarnefndin mun síðan sjá
til þess að heyi verði komið í girðinguna, þannig að fóðrun hrossanna verði þar
með tryggð.
Borgargirðingin verður síðan
smöluð laugardaginn 19. júní n.k. og þurfa eigendur hrossanna þá að koma sínum
hrossum í sínar girðingar (sem búið er að úthluta þeim sem sótt hafa um).
Þeir sem vilja ná í hrossin úr Borgargirðingunni fyrir þann tíma sjá
sjálfir um það.
Þá hefur verið ákveðið að ekki
verði heimilt að sleppa í úthlutaðar beitargirðingar fyrr en 10. júní n.k.
Beitarnefnd minnir á að áður en
hrossunum er sleppt í beitargirðingarnar og Borgargirðinguna þurfa
hesteigendur/umráðamenn að klippa merki sitt (úthlutuð númer) í síður hrossa
sinna.
Með hestakveðju,
F.h. Stjórnar og Beitarnefndar
Skugga
Stefán Logi Haraldsson
28.05.2010 20:53
Kvennareið felld niður
27.05.2010 20:37
Kynbótasýning á Mið-Fossum
Héraðssýning kynbótahrossa á Vesturlandi verður að Mið-Fossum, Borgarfirði dagana 7.-11. júní næstkomandi. Tekið er við skráningum hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands dagana 31. maí - 2. júní í síma 437-1215.
Við skráningu þarf að koma fram númer, nafn og uppruni hrossanna, nafn og kennitala knapa og sími. Sýningargjald á hvert hross er kr. 14.500,- fyrir fulldæmd hross en kr. 10.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikadóm.Sýningargjöld skal greiða á skrifstofu BV á Hvanneyri eða á reikning nr. 1103-26-100, kt.: 461288-1119. Ef greitt er í gegnum netbanka þarf að senda greiðslukvittun á netfangið bv@bondi.is. Nauðsynlegt er að fram komi nafn og númer hrossa sem greitt er fyrir. Ef ekki er greitt í gegnum netbanka, er mikilvægt að faxa greiðslukvittun á númerið 437-2015. Endurgreiðsla sýningargjalda kemur aðeins til greina að forföll séu tilkynnt áður en dómar hefjast.
Hafi greiðsla ekki borist fyrir hádegi 4. júní verður viðkomandi hross ekki skráð á sýninguna.
Reglur um kynbótasýningar má nálgast í heild sinni á vef BÍ, www.bondi.is undir hrossarækt.
Knaparnir eru beðnir um að mæta einungis með hross í góðu heilbrigðisástandi en hrossum sem sýna sjúkdómseinkenni verður vísað frá sýningunni.
27.05.2010 20:33
Nýjast um pestina
26.05.2010 22:57
Frá félagi tamningamanna
FT hvetur félagsmenn sína og alla hestamenn til að fara varlega hvað þjálfun hrossa varðar og flýta sér hægt enda dæmi um hörmulegar afleiðingar ef of snemma er farið af stað. Samkvæmt siðareglum FEI, sem er alþjóðlegt stjórnvald hestaíþrótta og Landssamband hestamannafélaga er aðili að, skal velferð hestsins ætíð vera í fyrirrúmi. Í siðareglum FEI/LH segir m.a. að "á öllum stigum undirbúnings og þjálfunar keppnishrossa skal velferð hrossins hafa forgang fram yfir allt annað" og FEI geri þær kröfur að " allir þeir sem taka þátt í alþjóðlegum hestaíþróttum fari að siðareglum FEI og viðurkenni og virði öllum stundum að velferð hestsins skuli alltaf hafa forgang fram yfir keppnis-eða auglýsingakröfur." Um aðbúnað og þjálfun segir svo "Hesthús, fóðrun og þjálfun skulu uppfylla kröfur um góða meðferð hrossa og mega ekki stefna velferð þeirra í tvísýnu. Allt sem orsakað getur andlegar eða líkamlegar þjáningar, í keppni eða utan hennar verður ekki liðið" og "Hross skulu ekki vera þjálfuð á þann hátt að það stefni líkamlegri eða andlegri getu og/eða þroska í voða." Þessar reglur er rétt að hafa í huga í ljósi núverandi aðstæðna og muna alltaf að hafa hagsmuni hestsins í fyrsta sæti.
FT hefur miklar áhyggjur af afkomu tamningamanna um þessar mundir og hvetur fólk til að huga vel að hrossum svo lágmarka megi skaðann og hægt verði að vinna sig út úr þessum vanda sem fyrst.
Stjórn FT hvetur sína félagsmenn til að hafa samband og kynna sín sjónarmið þannig að stjórnina geti sem best beitt sér í þeirra þágu.
Einnig minnir Félag tamningamanna á reglur um smitvarnir, en þær má m.a. skoða á heimasíðu Matvælastofnunar, www.mast.is. Gríðarlega mikilvægt er að hestamenn sem ferðast á milli landa til vinnu eða samskipta við hross fylgi reglum um smitvarnir ítarlega. Ekki síður að hestamenn og ferðaþjónustuaðilar hér á landi fræði viðskiptavini sína um þessar reglur. Heilbrigði íslenska hrossastofnsins er í húfi."
Stjórn Félags tamningamanna.
22.05.2010 21:19
Hrossapestin - stöðumat 20.maí
21.05.2010 00:04
Uppfærð viðburðadagatöl
20.05.2010 14:41
Frestun viðburða
18.05.2010 22:24
Viðtal í Eiðfaxa
17.05.2010 19:41
Girðingarpantanir
12.05.2010 21:45
Tiltektin
11.05.2010 21:11
Tiltekt í hesthúsahverfinu
11.05.2010 14:09
Orðsending frá L.H
Íslandsmót yngri flokka verður haldið á Hvammstanga hjá hestamannafélaginu Þyt dagana 12.-15. Ágúst 2010.
- 1
