Færslur: 2010 Apríl
28.04.2010 23:44
Þátttaka á LM 2010
28.04.2010 17:17
Viðburðadagatöl
27.04.2010 22:51
Líf í hestamennskunni
27.04.2010 22:45
Karlrembureið - auglýsing
karlar velkomnir óháð félagi svo endilega að taka sem flesta með.
Gott væri ef menn væru búnir að skrá sig fyrir kl 13:00 föstudaginn 30. apríl í síma 8609075 Siggi eða 8632294 Stebbi.
27.04.2010 08:13
Úrslit í firmakeppni
1. Landlínur ,Aron Sigurðsson og Svaðilfari
2. Marteinn og Maggi,Arna Ámundadóttir og Léttir
3. María Erla og Inga Lára , Þorgeir Ólafsson og Sólbrá
4. Gösli , Ísólfur Ólafsson og Sindri
5. Norðurál , Guðbjörg Halldórsdóttir
Unglingafl.
1. Vindás 9 , Axel Ásbergsson og Kjarni
2. Guðmundur Árnason , Sandra Bergsdóttir
3. Ingvar og Erla ,Sigríður Þorvaldsdóttir og Gloría
4. Handavinnuhúsið , Ólafur Axel Björnsson og Ari
5. Vöruflutningar Vesturlands, Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir
Konur
1. Borgarverk,Halldóra Jónasdóttir
2. Vindás 8 ,Ágústa Hrönn Óskarsdóttir
3. Gallerí Brák,Margrét Grétarsdóttir og Víkingur
4. Húsasmiðjan ,Steinunn Brynja Hilmarsdóttir og Pjakkur
5. Vífill Karlsson ,Heiðrún Halldórsdóttir
Karlar
1. Bjarni Guðjónsson,Ásberg Jónsson og Flögri
2. Arion banki Borgarnesi , Ingvar Þór Jóhannsson
3. Sjóvá Borgarnesi , Bjarki Þór Gunnarsson og Gabríel
4. Kaupfélag Borgfirðinga, Reynir Magnússon
5. Steini Eyþórsson,Bjarni Guðjónsson og Hrafn
25.04.2010 21:51
Að lokinni firmakeppni
23.04.2010 11:26
Firmakeppnin
22.04.2010 23:22
Landsmót á Vindheimamelum
21.04.2010 23:57
Námskeið vegna Kappa
Námskeiðin verða haldin sem hér segir:
Selfoss 27.apríl kl.20:00 Félagsheimili Sleipnis
Reykjavík 30.apríl kl.20:00 Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
Borgarnes 4.maí kl.20:00 Félagsheimili Skugga
Sauðárkrókur 6.maí kl.20:00 Reiðhöll Sauðárkróks
Akureyri 12.maí kl.20:00 Hafnarstræti 93-95
Vonumst til þess að sjá sem flesta,
Tölvunefnd LH.
19.04.2010 23:34
Firmakeppni
18.04.2010 21:54
Útigangurinn og eldgosið
Eigendur útigangshrossa um allt land þurfa að búa sig undir verja hross sín fyrir öskufalli. Of seint er að bregðast við eftir að umtalsvert öskufall er skollið á. Miðað við veðurspá fyrir næstu daga er mest hætta á öskufalli í Rangárvallasýslu en hrossaeigendur á öllu suður- og suðausturlandi þurfa að vera í viðbragðsstöðu. |
Þar sem mikið öskufall verður er hrossum bráð hætta búin af því að anda að sér öskunni, drekka mengað vatn og éta hana í sig með menguðu fóðri. Því þarf að hýsa öll hross á þeim svæðum. Sé það ekki hægt þarf að flytja hross á öruggari svæði.
Forðast skal þó flutninga á fylfullum hryssum, einkum af innan við mánuður er í köstun. Sé ekki hægt að hýsa þær með góðu móti skal þeim haldið heim við hús þar sem hægt er að vatna þeim með hreinu vatni og verja fóður fyrir mengun.
Skapist hætta á langvarandi flúormengun er mikilvægast er að verja trippi í vexti því þeim er hættast við varanlegu tjóni á tönnum og beinum. Þá er fylfullum hryssum sérlega hætt við kalkskorti í blóði sem er lífshættulegt ástand.
(tekið af heimasíðu Matvælastofnunar).
17.04.2010 21:35
Frá æskulýðs - og fræðslunefnd
- Keppnisnámskeið:
Leiðbeinandi verður Heiða Dís Fjeldsted.
Þeir sem hafa áhuga geta leitað upplýsinga og skráð þátttöku sína hjá neðangreindum nefndarmönnum.
Auður Ásta Þorsteinsdóttir, gsm. 699-1779, netfang: dila@simnet.is
Ásberg Jónsson, gsm. 897-7113, netfang: hraunholt@simnet.is
- Fjölskylduratleikur:
Allir félagsmenn velkomnir með fjölskyldur sínar.
- Síðsumarferð ungmenna:
Nánar auglýst síðar.
Kveðjur,
Æskulýðs- og fræðslunefnd Skugga.
16.04.2010 14:12
Skeifudagur á Mið-Fossum
Á sumardaginn fyrsta, þann 22. apríl, verður haldinn hátíðlegur Skeifudagur Grana á Mið-Fossum. Grani er hestamannafélag nemenda við Landbúnaðarháskóla Íslands. Þennan dag sýna nemendur í hrossarækt við LbhÍ afrakstur vetrarstarfsins í reiðmennsku og frumtamningum. Morgunblaðsskeifan verður afhent þeim nemenda LbhÍ sem stendur sig best í reiðmennsku- og frumtamninganámi vetrarins.
Keppt verður um Gunnarsbikarinn, sem gefinn er af Bændasamtökum Íslands í minningu Gunnars Bjarnasonar fyrrum hrossaræktarráðunauts og kennara á Hvanneyri. Kennari í vetur var tamningameistarinn Reynir Aðalsteinsson.Bryddað verður upp á ýmsum skemmtilegum atriðum þennan dag. Fram mun koma sýningarsveit borgfiskra hestakvenna; Skessurnar, nemendur Reiðmannsins, sem er námskeiðaröð í hestamennsku á vegum LbhÍ, keppa um Reynisbikarinn, ásamt fleiri skemmtilegum atriðum.
Að lokum má geta þess að hestamannafélagið Grani mun halda happadrætti þar sem dregið verður um fjölda glæsilegra folatolla.
Dagurinn verður haldin í glæsilegri aðstöðu LbhÍ að Mið-Fossum í Borgarfirði og byrjar dagskráin klukkan 13:00.
Allir eru hjartanlega velkomnir :)
Kveðja Grani og LbhÍ.
16.04.2010 10:00
Vesturlandssýning
Ákveðið hefur verið að halda Vesturlandssýningu í reiðhöllinni í Borgarnesi 14. og 15. maí næstkomandi, en sýningar af þessu tagi voru haldnar á höfuðborgarsvæðinu hér á árum áður.
Á sýningunni verður m.a. sýnt tölt, fimmgangur, fjórgangur, kynbótahross og atriði frá hestamannafélögunum á svæðinu. Börn og unglingar munu líka koma fram.
Sýningin er í undirbúningi um þessar mundir og viljum við benda á að allar tillögur um atriði á sýningunni eða fyrirkomulag hennar eru vel þegnar og má hafa samband við Ámunda Sigurðsson (amundi@isl.is eða 892 5678), Baldur í Múlakoti (baldur@vesturland.is eða 895 4936), Kari Berg (karisiggi@visir.is eða 868 1926) eða Stefán í Skipanesi (stefan@hroar.is eða 897 5194).
Þegar nær dregur sýningu má finna nánari upplýsingar á vef reiðhallarinnar í Borgarnesi www.reidholl.is
F.h. undirbúningsnefndar
Jökull H.
15.04.2010 22:11
Síðasti vetrardagur - Ball
- 1
