Færslur: 2010 Mars
31.03.2010 22:00
Leitarhestaæfing á Miðfossum
Allir eru velkomnir að koma með sinn hest og prófa brautina okkar og skemmtilegt verður að sjá og vita hvernig hestarnir og knaparnir leysa ýmsar þrautir og sjá hvað takmörkin þeirra eru.
Nánari uppl. má nálgast á heimasíðu okkar og hjá Eiríki & Höllu
Kv. Leitarhestasveit Borgarfjarðar
msar_iceland@yahoo.com
www.leitarhestar.123.is
31.03.2010 21:53
KB mótaröð - tölt og 5-gangur
31.03.2010 21:46
Fjörureiðin
31.03.2010 11:28
KB Mótaröðin - Úrslit/Gæðingakeppni
Síðastliðinn laugardag fór fram í Faxaborg, 3. mótið af 4 í KB-mótaröðinni, en að þessu sinni var keppt í gæðingakeppni á beinni braut í gegnum höllina. Dómarar voru þeir Sindri Sigurðsson og Stefán Ágústsson en sá háttur var hafður á að þessu sinni að gefin var einkunn strax að lokinni hverri gangtegund hjá hverjum keppanda sem var mjög áhorfendavænt og skapaði mikla stemmningu þar sem keppst var um að hvetja sína menn og sitt lið.
Kalt var í veðri og vindasamt en bæði keppendur og áhorfendur létu það ekkert á sig fá og var alveg frábær stemmning á meðal áhorfenda, stórkostleg tilþrif sáust í bæði A og B flokk og var það mál manna að hestakosturinn væri gríðarlega sterkur og spennandi landsmótsár framundan hjá okkur vestlendingum, þess má geta að síðasta mótið í KB-mótaröðinni fer fram 10 apríl næstkomandi þar sem keppt verður í tölti í öllum flokkum og fimmgang í 1. og 2. flokk. Úrslit urðu gæðingarkeppninnar urðu eftirfarandi:
Barnaflokkur:
- Valdís Björk Guðmundsdóttir og Snælda frá Sviganskarði 8,38/8,45
- Guðný Margrét Siguroddsdóttir og Mosi frá Kílhrauni 8,18/8,28
- Konráð Axel Gylfason og Smellur frá Leysingjastöðum 7,95/8,08
- Gyða Helgadóttir og Víðir frá Holtsmúla7,98/7,98
- Aron Freyr Sigurðsson og Glaumur frá Oddsstöðum 7,90/7,93
Unglingaflokkur:
- Sigrún Rós Helgadóttir og Biskup frá Sigmundarstöðum 8,08/8,33
- Svandís Lilja Stefánsdóttir og Máni frá Skipanesi 8,28/8,28
- Þórdís Fjeldsted og Móðnir frá Skipanesi 7,88/8,08
- Axel Örn Ásbergsson og Kjarni frá Miðhjáleigu 7,93/7,97
- Íris Ragnarsdóttir og Sörli frá Skaftafelli 7,85/7,90
Ungmennaflokkur:
- Heiðar Árni Baldursson og Breki frá Brúarreykjum 8,22/8,40
- Marina Schregelmann og Stapi frá Feti 8,10/8,23
- Arnar Ásbjörnsson og Brúnki frá Haukagili 7,43/8,00
- Höskuldur Kolbeinsson og Kólfur frá Stóra-Ási 7,72/7,77
2.flokkur B-Flokkur/B - Úrslit:
- Halldóra Jónasdóttir og Tvistur 7,75/8,20
- Ásberg Jónsson og Flögri frá Hjarðarholti 7,90/8,08
- Björgvin Sigurstensson og Grein frá Skjólbrekku 7,83/8,05
- Lára Kristín Gísladóttir og Tvistur frá Stóra-Ási 7,83/7,92
- Ólafur Þorgeirsson og Sólbrá frá Borgarnesi 7,75/7,18
2.flokkur B-Flokkur/A - Úrslit:
- Ólafur Guðmundsson og Hlýri frá Bakkakoti 8,32/8,38
- Gunnar Tryggvason og Kári frá Brimisvöllum 7,93/8,35
- Þórdís Arnardóttir og Tvistur frá Þingnesi 8,22/8,28
- Halldóra Jónasdóttir og Tvistur 7,75/8,20
- Guðni Halldórsson og Gyðja frá Engimýri 7,92/8,07
- Ámundi Sigurðsson og Bíldur frá Dalsmynni 7,92/8,07
- Steinunn Hilmarsdóttir og Pjakkur frá Skjólbrekku 7,97/8,05
1.flokkur B-Flokkur:
- Birna Tryggvadóttir og Elva frá Miklagarði 8,57/8,78
- Benedikt Líndal og Lýsingur frá Svignaskarði 8,53/8,55
- Kolbrún Grétarsdóttir og Snilld frá Hellnafelli 8,48/8,55
- Gunnar Halldórsson og Eskill frá Leirulæk 8,50/8,52
- Randi Holaker og Skáli frá Skáney 8,40/8,40
2.flokkur A-Flokkur:
1. Ólafur Guðmundsson og Bleikja frá Stóra Langadal 8,12/8,35
2. Ólafur Tryggvason og Sunna frá Grundarfirði 8,25/8,28
3. Guðni Halldórsson og Glaður frá Þverholtum 8,23/8,15
4. Ámundi Sigurðsson og Amon frá Miklagarði 8,08/8,12
5. Þórdís Arnardóttir og Niður 8,02/8,02
6. Snorri Elmarsson og Hylling frá Tröðum 8,02/7,83
1.flokkur A-Flokkur:
- Haukur Bjarnason og Sólon frá Skáney 8,51/8,65
- Birna Tryggvadóttir og Röskur frá Lambanesi 8,50/8,58
- Guðmundur M. Skúlason og Fannar frá Hallkellstaðarhlíð 8,15/8,27
- Kolbrún Grétarsdóttir og Ívar frá Miðengi 8,30/8,13
- Edda Þórarinsdóttir og Flækja frá Giljahlíð 7,85/7,58
30.03.2010 00:43
Fjöruferðin
Rauðanesferðin!!
Hin árlega ferð á Rauðanesfjöru verður farin á Föstudaginn langa.
Lagt verður af stað kl. 12.00
Menn eru vinsamlegast beðnir að stilla hestafjölda í hóf.
Takið með ykkur góða skapið.
Allir velkomnir.
Ferðanefnd Skugga
28.03.2010 18:17
KB mótaröðin - myndir
26.03.2010 11:28
Dagskrá og ráslistar - KB-mótaröð
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
2.flokkur B-Flokkur
1.flokkur B-Flokkur
2.flokkur A-Flokkur
1.flokkur A-Flokkur
HLÉ
Úrlsit
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
2.flokkur B-Flokkur
1.flokkur B-Flokkur
2.flokkur A-Flokkur
1.flokkur A-Flokkur
24.03.2010 17:01
Auglýsing frá LH
Landsmót hestamanna sem haldið verður í Skagafirði dagana 27. júní - 4. júlí hefur óskað eftir samstarfi við æskulýðsnefndir hestamannafélaga landsins í þeim tilgangi að virkja ungmenni og unglinga við verðlaunaafhendingu á mótinu.
Mælst er til að unga fólkið skarti félagsbúningi sínum við afhendinguna og geta áhugasamir haft samband við æskulýðsnefndir hestamannafélaganna en einnig er hægt að senda póst á landsmot@landsmot.is.
Í póstinum þarf að koma fram nafn og aldur ásamt upplýsingum um hvaða hestamannafélagi viðkomandi tilheyrir.
23.03.2010 23:25
Stóðhestar á vegum Hrossvest
22.03.2010 21:34
Gæðingakeppnin 27.mars
21.03.2010 14:54
Skuggadísir - reiðnámskeið
Skuggadísir, kvennadeild Skugga í Borgarnesi munu standa fyrir reiðnámskeiðum fyrir konur núna í apríl fram í maí. Bæði verður boðið upp á almennt námskeið, fyrir þær sem eru lengra komnar og einnig byrjendanámskeið.
Hvert námskeið er 7 skipti, 6 tímar í reiðhöll og síðasta skiptið verður jafnvel reiðtúr eða annað skemmtilegt.
Kennt verður á fimmtudögum og föstudögum í apríl-maí.
(8 apríl, 15-16 apríl, 23 apríl, 29-30 apríl og 7 maí)
Hver kennslustund er ca 45 mín og fer kennslan fram í
reiðhöllinni Faxaborg. Kennt verður frá kl 18:00-20:00.
Miðað verður við hámark 5 konur í hóp,
Kennari á námskeiðunum verður Heiða Dís Fjelsted, reiðkennari frá Háskólanum á Hólum
Verð er kr 14.000.-
Skráningarfrestur er til 29. mars.
Allar nánari upplýsingar og skráning hjá Guðrúnu Ástu í síma 860-1990 eða á netfangið gudrunasta@simnet.is
Námskeiðisgjald greiðist við skráningu inn á reikning Skuggdísa
0326-13-111688 kt: 481079-0399
Hestamannafélagið Skuggi / Skuggadísir.
ATH: Námskeiðin verða aðeins haldin ef tiltekin lágmarks þáttaka næst
19.03.2010 21:29
Umgengnisreglur samþykktar
18.03.2010 23:23
Opin gæðingakeppni í gegnum Faxaborg 27.mars
Skráningar þurfa að berast fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 24.mars á netföngin: hrafnhildurgu@torg.is, birnat@yahoo.com eða í s. 691-0280 eða 699-6116. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisflokkur, nafn knapa, nafn hests,litur hests, aldur hests, lið Skráningargjald er 1500.kr fyrir 1.,2.flokk- og ungmenni. (1.000 kr.fyrir annan hest) 1000 kr.fyrir börn og unglinga. Greiðist inn á reikning 0326-13-004810-4810790399 í síðasta lagi miðvikudaginn 24.mars annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á helga.bjork@simnet.is þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að borga. B flokkur: hægt tölt, brokk, yfirferð og frjáls ferð. A flokkur: tölt, brokk, skeið og frjáls ferð. (6 í holli, 4 ferðir). Minnum fólk á að koma vel klætt þar sem að höllin verður opin í báða enda. Aðgangseyri 500kr.
18.03.2010 20:58
Skemmtiferðin
- 1
- 2

