Færslur: 2010 Febrúar
27.02.2010 12:37
Opið ísmót á Vatnshamarsvatni við Hvanneyri.
Hestamannafélagið Faxi heldur opið ístölt sunnudaginn 28. febrúar kl. 13.00 á Vatnshamravatni (klst. akstri frá Reykjavík, keyrt í átt að Hvanneyri ef komið er frá Reykjavík. Aftur til vinstri í átt að Hvanneyri og síðan sést vatnið, bílar og fólk á hægri hönd) Keppt verður í fjórum flokkum og verður dagskráin þessi: 17 ára og yngri (hægt tölt og fegurðartölt) 2. flokkur (hægt tölt og fegurðartölt) Ung og/eða nýhrossakeppni (ekki keppnisvön hross) (hægt tölt og fegurðartölt) 1.flokkur (hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt). Úrslit í lok hvers flokks. Skráning á staðnum til kl. 12:45. Skráningargjald er kr. 1000 í alla flokka. A.t.h. Tökum ekki kort. Gefendur verðlauna er hestavöruverslunin knapinn Borganesi, Íþróttamiðstöðin Borganesi, Hyrnan Borganesi, Hárgreiðslustofan PK, Hárgreiðslustofan Sóló o.fl. Heit kjötsúpa á staðnum J Takmarkaður fjöldi bíla kemst að vatninu og því athygli vakin á að fólk velji sér klæðaburð við hæfi þó svo að veðurspáin sé góð.
27.02.2010 00:07
Snjórinn
26.02.2010 12:37
Frábær vildarkjör fyrir LH og BÍ félaga
-forsala aðgöngumiða á LM 2010 hafin
24.02.2010 23:26
Youth Cup
Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um reynslu í hestamennsku, mynd, keppnisárangur og upplýsingar um önnur skilyrði þátttöku.
Nánari upplýsingar fást á heimasíðu LH undir æskulýðsmál og hjá æskulýðsfulltrúum LH og félaganna.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu LH, Engjavegi 6, 104 Reykjavík fyrir 1. mars nk.
Sjá nánari upplýsingar undir ÆSKULÝÐSMÁL (á heimasíðu L.H.)
23.02.2010 23:02
Nafnaleitin
23.02.2010 09:26
Samkeppni um nafn á reiðhöllina
Ákveðið
hefur verið að formleg vígsla Reiðhallarinnar við Vindás í Borgarnesi fari fram
sunnudaginn 7. mars næstkomandi. Í aðdraganda vígslunnar hefur einnig verið
ákveðið að fram fari samkeppni um nafn á húsið. Nafnanefndin er skipuð þeim
Kristjáni Gíslasyni formanni, Sigurði Oddi Ragnarssyni og Magnúsi Magnússyni.
Verðlaun verða veitt fyrir tillögu að nafni sem valið verður. Ef fleiri en ein
tillaga berst um sama nafnið, verður dregið um vinningshafa. Hér með eru íbúar
á svæðinu, hestamenn og Vestlendingar nær og fjær hvattir til að senda inn
tillögur að nafni. Þær skulu annað hvort vera póstlagðar í lokuðu umslagi á
formann dómnefndar: Kristján Gíslason, Súlukletti 3, 310 Borgarnesi eða sendar
á tölvupósti á: kristgis@grunnborg.is
(gott að merkja í efnislínu "Tillaga að nafni.") Tillögur þurfa að hafa borist
til formanns nafnanefndar fyrir nónbil þriðjudaginn 2. mars 2010.
21.02.2010 11:37
Reiðnámskeið í Söðulsholti
Með kveðju
Dóri og Iðunn.
Söðulsholt
311 Borgarnes
sodulsholt@sodulsholt.is
www.sodulsholt.is
s:8995625
18.02.2010 20:21
Leitarhestafundur sunnudaginn 21.febrúar
Dagskrá
leitarhestafundar sunnudaginn 21.febrúar í Pétursborg, húsi Bjsv.Brákar,
Borgarnesi.
Fundarstjóri er: Ragnar Frank
Kristjánsson
Fundarstjóri er: Ragnar Frank Kristjánsson
13:00 - 13:20 Hæfniskröfur knapa sem björgunarmanns - Anna P. og Heiða
13:20 - 13:35 Hæfniskröfur hests - Anna P. og Heiða
13:35 - 13:55 Alþjóðlegir staðlar fyrir leitarhestahópa - Halla og María
13:55 - 14:00 "Salernishlé"
14:00 - 14:25 Útbúnaður - Eiríkur
14:25 - 14:35 Tryggingar - Halla
14:35 - 14:55 Leitartækni og hugmyndir að æfingum - Soffía
14:55 - 15:10 Umræður
15:10 - 15:30 Kaffihlé
15:30 - Sigurður Oddur hestaferðafrömuður og járningameistari, fjallar um ferðalög, þjálfun f. ferðalög, útbúnað og járningar á ferðalögum.
(16:30 - 17:00 Ef að Edda Þórarinsdóttir dýralæknir verður ekki vant við látin á vaktinni ætlar hún að mæta og láta ljós sitt skína um sjúkrabúnað hesta)
17:00 - 18:00 Hestamennska og slysavarnir - Umræður varðandi framkvæmd hugmynda um að félagar í Leitarhestum haldi fyrirlestra hjá hestamannafélögum um slysavarnir í hestamennsku. Sameina fræðslu og fjáröflun vegna námsskeiðs. Hverju viljum við koma á framfæri við hinn almenna hestamann?
18:00 - 18:30 Ráðstefnan Björgun 2010 í Október. Erlendur fyrirlesari, T'mi Finkle, verður að öllum líkindum þar með leitarhestafyrirlestur og mun vonandi halda leitarhestanámsskeið á svipuðum tíma á Íslandi. Eru einhver önnur námsskeið (á Íslandi) sem við myndum vilja fá fyrir leitarhestahópa?
18:30 - 19:30 Eðal pottréttur á vegum Gæðakokka, kr.500.- á mann. Láta vita fyrir kl.21:00 nk. föstudagskvöld í síma 6990717 eða á msar_iceland@yahoo.com.
Dagskráin framundan hjá Leitarhestum Borgarfjarðar:
23. mars - Fundur
3. eða 4. apríl - Hittast í reiðhöll og fara í þrautabraut. Páskakeppni.
20. apríl - Fyrirlestur um það hvernig á að gera hest "sprengjuheldan". Julio?
18. maí - Fundur
29. eða 30. maí - Stór leitaræfing með gangandi fólki og hestum
15. júní - Fundur
9. - 11. júlí - Útileguhestaferð
17.02.2010 22:53
Námskeið: Hross í hollri vist
Námskeiðið er í boði fyrir hestamannafélög, hestamenn og annað áhugafólk um hesthúsbyggingar.
Lýsing: Á námskeiðinu er farið yfir skynjun og atferli hrossa með sérstaka áherslu á það hvernig hross skynja umhverfið í hesthúsi. Fjallað um mikilvægi réttrar hönnunar loftræstingar og skoðuð nokkur dæmi. Þá verður farið yfir með hvaða hætti hanna á og ganga frá gólfum í hesthúsum og jafnframt rætt um kosti og galla mismunandi undirburðar. Þá verður drjúgum tíma varið til þess að ræða um aðbúnað hrossa og annarrar aðstöðu í hesthúsinu, sem og í útigerði. Að síðustu verður kynning á hönnun lausagönguhesthúsa.
Umsjón og kennsla: Sigtryggur Veigar Herbertsson og Snorri Sigurðsson, sérfræðingar hjá LbhÍ.
Stund og staður: lau. 13. mars kl 9:30-17:00 (9 kennslustundir) í Ásgarði á Hvanneyri.
Verð: 14.500 kr (kennsla, gögn og veitingar).
Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000
(fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun með skýringu á endurmenntun@lbhi.is . Minnum á stéttarfélags- og starfsmenntasjóði
17.02.2010 22:50
Fræðslukvöld: Litaerfðir hrossa og erfðir á þeim
Á fræðslukvöldinu verður farið yfir helstu hrossaliti og erfðum þeirra lýst. Myndir verða mikið notaðar og raunveruleg dæmi tekin til útskýringar. Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning á helstu atriðum litaerfðanna.
Kennari: Guðni Þorvaldsson, sérfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Stund og staður: Mán. 8. mars Kl. 19:30-22:00 í matsal, Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Verð: 1500 kr. Greitt á staðnum, ekki er tekið við kortum. Mikilvægt er að skrá sig fyrirfram! Skráningar: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000.
16.02.2010 22:52
Stóðhestar
15.02.2010 12:46
Úrslit gærdagsins
13.02.2010 18:33
KB mót - A úrslit

13.02.2010 17:45
2. flokkur - verðlaunaafhending
13.02.2010 17:13
Unglingaflokkur - úrslit
- 1
- 2


