25.01.2012 15:54
Skemmtiferð
Ágætu félagar
Hestamannafélagið Skuggi stendur fyrir skemmtiferð á Snæfellsnes laugardaginn 11. febrúar næstkomandi.
Lagt verður af stað með rútu frá Hyrnunni í Borgarnesi kl. 9:30 og er áætluð heimkoma kl. 17:30.
Þátttökugjald er kr. 2.000,- á mann, sem greiðist við upphaf ferðar.
Byrjað verður á heimsókn í hesthúsið og reiðhöllina að Bergi í Eyrarsveit, þar sem Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson búa og reka myndarlegt hrossaræktarbú og munu þau sýna okkur nokkur af ræktunarhrossum sínum. Án efa verða í þeim hópi einhver afkvæma Hríslu frá Naustum, en hún er m.a. móðir þeirra Ugga (8,24-8,79-8,57), Sporðar (8,18-8,28-8,24), Skriðu (8,13-8,43-8,31) og Haka (8,16-8,01-8,07), sem öll eru frá Bergi.
Því næst verður stoppað í félagsheimili hesteigendafélags Grundarfjarðar, þar sem heimamenn með Ingibjörgu Sigurðardóttur, Bibbu, í broddi fylkingar, taka á móti okkur með kaffi og meðlæti eins og Grundfirðingum er svo lagið. Ef tími er til verður kíkt í hesthús í Grundarfirði eða í reiðhöll hestamannafélagsins Snæfellings.
Síðasta stopp verður svo sunnan fjalls, hjá Gunnari Sturlusyni óðalsbónda í Hrísdal í Eyja- og Miklaholtshreppi, en hann mun sýna okkur aðstöðuna og hrossin hjá Hrísdalshestum sf, ásamt þeim Ásdísi Sigurðardóttur og Siguroddi Péturssyni sem starfa á búinu. Þar verður hægt að kynnast þeirri starfsemi sem Hrísdalshestar bjóða uppá og skoða glæsilegt 32 hesta hesthús ásamt reiðhöll.
Skráning í þessa ómissandi ferð er hjá Jökli Helgasyni í síma 864-6006 eða á netfangið jokull73@simnet.is eða hjá Halldóri Sigurðssyni í síma 892-3044 og er skráningarfrestur til laugardagsins 4. febrúar næstkomandi.
Allir velkomnir.
F.h. kynbótanefndar/skemmtinefndar (hinnar gömlu);
Jökull Helgason og Halldór Sigurðsson

Skrifað af Kristján Gíslason
Flettingar í dag: 204
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 257
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 212915
Samtals gestir: 47939
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:15:36